Hátíðartónleikar Nótunnar fóru fram í Eldborgarsal Hörpu sunnudaginn 19. mars, en Nótan er uppskeruhátíð tónlistarskólanna á landsvísu.
Mikið líf var í Hörpu allan daginn, með þrennum tónleikum í Eldborg, vinnusmiðjum og tónlistarflutningi í Hörpuhorni. Að þessu sinni sendu tónlistarskólar alls staðar að af landinu hópatriði (hljómsveitir eða samspilshópa) til þátttöku á tónleikunum.
Suzuki-gítarhópur undir stjórn Birgitar Myschi, við undirleik Kristins Freys Kristinssonar var framlag Tónlistarskóla Árnesinga í ár. Stóðu nemendur og kennarar sig afkaplega vel og voru skólanum til mikils sóma. Á þessari slóð má sjá nokkrar myndir frá Nótunni: Nótan 2023 – MYNDIR | Kennarasamband Íslands (ki.is)
– Takk fyrir allan undirbúninginn og frábæra frammistöðu í Hörpu!
Frá æfingu fyrir tónleika. Suzuki-gítarhópurinn á sviði í Eldborgarsal Hörpu
/Helga Sighv.