Rytmískt nám er ætlað nemendum 8/9 ára og eldri.
– ATH. Undir nöfnum hljóðfæranna eru virkar krækjur með upplýsingum um hljóðfærin.
Námsgreinar eru:
• Rafgítar
• Rafbassi
• Rytmísk fiðla-víóla-selló – Undanfari: Grunnpróf á hljóðfæri
ATH. stærð nemenda getur skipt máli.
Kennt er í einkatímum 30* – 60 mín. á viku, en í rytmísku námi er samspil þungamiðja námsins og taka rytmískir nemendur þátt í því frá upphafi. Auk nemenda á rafgítar, rafbassa og trommur geta nemendur í klassísku hljóðfæra- og söngnámi tekið þátt í rytmísku samspili.
Kennt er samkvæmt Aðalnámskrá tónlistarskóla (Almennum hluta og greinanámskrá): Stjórnarráðið | Námskrár (stjornarradid.is)
– Amennur hluti: Aðalnámskrá tónlistarskóla – almennur hluti (stjornarradid.is)
– Greinanámskrá: Aðalnámskrá tónlistarskóla : rytmísk tónlist [Eingöngu á rafrænu formi] (stjornarradid.is)
Nemendur þurfa að hafa aðgang að, eða kaupa hljóðfæri (í samráði við kennara).
Í tónlistarnámi þarf að gera ráð fyrir kaupum á nótnabókum, nótnapúlti (statífi), magnara, fótstól o.fl. eftir því hvert hljóðfærið er.
* Í klassísku og rytmísku námi býðst nemendum á fyrsta ári að sækja 30 mínútna einkatíma, en á öðru ári er almennt miðað við að nemendur séu í heilu námi þ.e. 60 mín. á viku í einkatíma.