Starfsmannastefna
Tónlistarskóli Árnesinga leggur áherslu á að allir séu metnir að verðleikum, njóti skilnings og beri virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu.
Skólinn stefnir að árangursríku og fjölbreyttu skólastarfi þar sem áhersla er lögð á fagþekkingu, sköpunarhæfni og metnaðarfullt þróunarstarf. Starfsmannastefna tónlistarskólans hefur þetta að leiðarljósi í skólastarfinu og í öllum samskiptum.
Við val á starfsfólki er lögð áhersla á:
-faglega þekkingu, hæfni í samskiptum og frumkvæði.
-áhuga og virðingu starfsmanns á sérstöðu skólans m.t.t. fjölbreytts nemendahóps og dreifðrar starfsemi.
-jafnrétti kynjanna, jafnri stöðu og virðingu kvenna og karla innan skólans.
Lögð er áhersla á að hvetja starfsfólk til:
-dugnaðar og frumkvæðis.
-endurmenntunar á sínu sviði.
-þróunarstarfs.
-þátttöku í stefnumótun skólans.
-þátttöku í fræðslustarfi á vegum skólans.
Skólinn vill vinna að:
– því að frumkvæði og virkni starfsmanna sé metin og viðurkennd.
-réttmætum sjálfsmatsaðferðum.
-starfsþróun.
Í skólastarfinu er stuðlað að:
-sterkri liðsheild starfsfólks.
-skýrum og ákveðnum boðleiðum.
-góðu upplýsingastreymi.
-faglegum samskiptum innan skóla sem utan.
-góðu stuðningskerfi fyrir nýja starfsmenn.
-góðu aðgengi og öryggi á vinnustað.
-góðri aðstöðu fyrir starfsfólk bæði til vinnu og hvíldar.
-góðu heilsufari starfsfólks.