Svæðistónleikar Nótunnar (uppskeruhátíðar tónlistarskóla) fóru fram í Salnum í Kópavogi laugard. 19. mars. Á tónleikunum komu fram nemendur frá Suðurlandi, Suðurnesjum og úr Kraganum, þ.á.m. þrjú atriði frá Tónlistarskóla Árnesinga:
Rytmíska sveitin ÍSA-tríó, flutti lagið So what eftir Miles Davis, en sveitina skipa þeir Ívar Dagur Sævarsson rafgítar, Arilíus Smári Orrason, rafbassi og Samúel Guðmundsson trommur,
Arnar Gísli Sæmundsson söng við undirleik Margrétar S. Stefánsdóttur lagið Parla più piano eftir Nino Rota úr kvikmyndinni Guðföðurnum og
þrír gítarleikarar, þeir Albert Hellsten Högnason, Ásgeir Ægir Gunnarsson og Guðbergur Davíð Ágústsson léku Partial Eclipse eftir Richard Charlton.
Allir stóðu nemendurnir sig afskaplega vel og skólanum til mikils sóma. Kennurum þeirra, þeim Vigni Ólafssyni, Margréti S. Stefánsdóttur og Birgit Myschi eru færðar kærar þakkir fyrir undirbúninginn.
Margrét og Arnar Gísli ÍSA-tríó: Ívar Dagur, Samúel og Arilíus Smári Albert, Ásgeir Ægir og Guðbergur Davíð