Tónleikar í Stokkseyrarkirkju – nýr semball vígður
Tónlistarskóli Árnesinga festi kaup á sembal sl. vor. Hljóðfærið er keypt frá Klinkhammer-sembalverkstæðinu í Hollandi og fyrirmyndin er semball frá um 1700. Þetta eykur möguleika skólans umtalsvert að flytja renesans- og barokktónlist (16. – 18. aldar tónlist), þar sem söngur, blokkflautur og fleiri hljóðfæri fá notið sín með sembalnum.
Semballinn var vígður á dásamlegum tónleikum Nordic Affect í Stokkseyrarkirkju 15. október. Guðrún Óskarsdóttir lék á sembalinn, en með Nordic Affect komu fram skoski blokkflautuleikarinn Ian Wilson og Eyjólfur Eyjólfsson söngvari og langspilsleikari, sem einnig er kennari við Tónlistarskóla Árnesinga.
/Helga Sighv.