Starfsfólk Tónlistarskóla Árnesinga óskar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla með þökkum fyrir árið sem er að líða.
Jólalag 2024 er Nú er glatt í döprum hjörtum eftir Wolfgang Amadeus Mozart, í útsetningu Jóhanns I. Stefánssonar.
Söng-, blokkflautu- og trommunemendur ásamt kennurum, flytja jólakveðjuna í ár.
Sjá hér: https://fb.watch/wEUW-iL9k_/
Kastljósinu í ár er beint að nýja sembalnum sem keyptur var sl. vor frá Hollandi (fyrirmyndin Klinkhammer-semball frá um 1700).
Við reynum að þessu sinni að skapa hljóðheim frá fyrri öldum með tónlistar- og hljóðfæravali. – Njótið vel!
/Helga Sighv.