Hljóðfæradeildir tónlistarskólans halda sína deildatónleika í nóvember, en á þeim komu fram allar hljómsveitir og samspilshópar auk fjölda smærri samleiksatriða og einleiks.
Blásara-, blokkflautu-, gítar- og strengjadeildatónleikar voru haldnir í nýjum sal Stekkjaskóla sem var mjög gleðilegur viðburður, því þarna opnaðist glæsilegur tónleikasalur – bjartur og fallegur með góðum hljómburði, sem tekur vel 150 manns í sæti. Það var ánægjulegt að fá tækifæri til að hlusta á ólíka hljóðfærahópa í þessum nýja sal og heyra hvað hann skilaði vel öllum tónlistarflutningi. Við óskum Árborgarbúum til hamingju með þessa góðu búbót!
Rytmísku deildartónleikarnir voru haldnir í sal skólans við Eyraveginn og gaman að heyra hvernig þessi yngsta hljóðfæradeild skólans hefur þroskast á þeim fáu árum sem hún hefur starfað. Fimmtud. 16. nóvember kl. 17:30 verða svo haldnir píanódeildartónleikar í félagsheimilinu Aratungu, þar sem fram komu nemendur á öllum námsstigum. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá tónleikunum í Stekkjaskóla og við Eyraveg, en nemendur stóðu sig afskaplega vel og gaman að heyra hvað kennararnir höfðu undirbúið fjölbreytta og þétta dagskrá.
/ Helga Sighv.
Frá blásaradeildartónleikum 3. nóvember
Frá blokkflautudeildartónleikum 6. nóvember
Frá gítardeildartónleikum 8. nóvember
Frá strengjadeildartónleikum 9. nóvember
Frá rytmískum deildartónleikum 10. nóvember