This event has passed.
Ritari óskast til starfa frá 1. mars. Umsóknarfrestur til 2. febrúar
2. febrúar 2022
Skólaritari og launafulltrúi
Tónlistarskóli Árnesinga óskar eftir að ráða til starfa ritara í 65% starf frá 1. mars 2022.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn skrifstofustörf.
- Umsjón með reikningshaldi.
- Skólaritari er jafnframt launa- og persónuverndarfulltrúi.
Hæfnikröfur
- Auk stúdentsprófs er bókhaldsnám eða bókhaldsþekking æskileg.
- Góð íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta.
- Reynsla af launaforritinu H-laun er kostur.
- Lipurð í mannlegum samskiptum, samviskusemi og frumkvæði.
Með umsókn fylgi upplýsingar um menntun og starfsreynslu og meðmæli tveggja aðila.
Skólaritari starfar í húsnæði tónlistarskólans Eyravegi 9, Selfossi.
Fastur starfstími skólaritara er kl. 12:00 – 16:00 auk fjögurra morgna í mánuði kl. 8:00 – 12:00 (eða eftir samkomulagi).
Kjör eru samkvæmt kjarasamningi FOSS.
Umsóknarfrestur er til 2. febrúar 2022.
Upplýsingar fást hjá skólastjóra í síma 861-9687 / helga@tonar.is eða aðstoðarskólastjóra í síma 864-1235 / joi@tonar.is, sem einnig taka á móti umsóknum.