2024-12-25T00:00:00+00:00
Loading Events
This event has passed.

Minningartónleikar 19. nóvember kl. 19:30 í Hveragerðiskirkju

Söngnemendur og nokkrir hljóðfæranemendur Tónlistarskóla Árnesinga, í samstarfi við Söngsveit Hveragerðis, munu flytja lög eftir fyrrum píanókennara skólans Sigfús Ólafsson, sem orðið hefði áttræður í ár.

Um leið minnumst við Hjartar Þórarinssonar sem lést í sumar, en hann var einn af stofnendum Tónlistarskóla Árnesinga árið 1955 og fjármálstjóri skólans til fjölda ára.

Ásgeir Sigurðsson, fyrrum skólastjóri Tónlistarskólans, útsetti lögin.

Aðgengur að tónleikunum er ókeypis.

Verið öll hjartanlega velkomin!

            

Sigfús Ólafsson                       Hjörtur Þórarinsson

 

 

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi