2024-07-17T00:00:00+00:00

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Haustfrí 15. – 19. október

Fimmtud. 15. – mánud. 19. október verður haustfrí í Tónlistarskóla Árnesinga. Öll kennsla fellur niður í tónlistarskólanum þessa daga. Flestir grunnskólar í Árnessýslu eru með starfs- eða frídaga í kringum þessa helgi, en athugið að þeir eru ekki samræmdir að öllu leyti.

Jólafrí 19. desember – 4. janúar

Jólafrí verður í tónlistarskólanum frá 19. desember 2020 til og með 4. janúar 2021. Kennsla hefst aftur eftir jólafrí þriðjud. 5. janúar 2021

Kennsla hefst

Kennsla hefst 5. janúar 2021 skv. stundaskrá. Allt hópastarf fer líka af stað 5. janúar.   Við höldum uppi öllum fyrri smitvörnum – og nú skiptir máli að halda út og vanda sig áfram :) - Vandaður handþvottur - 16 ára og eldri noti grímur (undanþegnir eru blásara- og söngnemendur í tímum). - Miðum áfram við að Suzuki-foreldrar geti mætt í einkatíma með börnum sínum og að foreldrar 6 ára og yngri megi koma með í hóptíma. - Grímuskylda foreldra. Sjá nánar meðfylgjandi reglugerð sem gildir 1.1.2021 - 28.2.2021: B_nr_1306_2020

Foreldraheimsóknavika – rafræn eða í síma

Foreldraheimsóknavika 11. - 15. janúar. Foreldrar mæta ekki í kennslustund, en kennarar hafa samband og: - bjóða foreldrum að mæta rafrænt í tíma eða - hringja í foreldra, til að fara yfir miðsvetrarmatið og ræða um verkefni vorannar (hvort stefnt sé á próf, upptökur eða annað). Ath. – foreldrum er líka velkomið að hafa samband að fyrra bragði.

Prófadagar – öll kennsla fellur niður

Öll kennsla fellur niður á prófadögum 15. - 17. mars. Upplýsingar um hvort nemandi fari í próf fást hjá kennara, en ekki taka allir nemendur próf á þessum dögum.  

Páskafrí

Páskafrí 27. mars - 5. apríl. Kennsla hefst aftur þriðjud. 6. apríl skv. stundaskrá

Síðasti kennsludagur 26. maí – engin skólaslit

Vegna Covid verða ekki hefðbundin skólaslit í vor. Þess í stað verður kennsla til og með 26. maí.   Í þessum síðustu tímum vetrarins: - afhenda kennarar nemendum prófskírteini, - innheimta leiguhljóðfæri frá nemendum sem hætta námi, - haldnir verða nemendatónleikar ef ekki hefur tekist að ljúka þeim fyrr og - þá má búast við að einhverjir kennarar brjóti upp hefðbundna tíma með námskeiðum fyrir nemendur o.fl.

Umsóknir nýnema um skólavist 2021 -2022

Nú er rétti tíminn til að sækja um nám fyrir nýnema veturinn 2021-2022. Umsóknina finnið þið undir hnappinum UMSÓKN UM SKÓLAVIST, efst á heimsíðunni. Athugið að sækja má um skólavist allt árið. Þeir sem sækja um fyrir 1. júní eru í fyrsta hópnum sem tekinn er inn, en við bætum áfram við nemendum eftir því sem rúm leyfir.  

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi