2024-07-17T00:00:00+00:00

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Umsóknir nýnema um skólavist 2022 -2023

Nú er rétti tíminn til að sækja um nám fyrir nýnema veturinn 2022-2023. Umsóknina finnið þið undir hnappinum UMSÓKN UM SKÓLAVIST, efst á heimsíðunni. Athugið að sækja má um skólavist allt árið. Þeir sem sækja um fyrir 1. júní eru í fyrsta hópnum sem tekinn er inn, en við bætum áfram við nemendum eftir því sem rúm leyfir.   Nánari upplýsingar t.d. um kennslugreinar, skólagjöld og kennslustaði má finna hér: Dreifibréf 2022  

Kennsla hefst 29. ágúst 2022

Hljóðfæra- og söngkennsla hefst 29. ágúst. Kennarar hafa samband við nemendur sína á starfsdögum 22. - 26. ágúst vegna stundatöflugerðar.

Hóptímar hefjast 5. september

Allir hóptímar (tónfræðikennsla, hljómsveitaræfingar og samspil) hefjast frá og með 5. september. Nánari upplýsingar fá nemendur hjá sínum hljóðfæra-/söngkennurum og í nemendaskrá.

Foreldraheimsóknavika 19. – 23. sept.

Foreldraheimsóknavika verður dagana 19. – 23. september. Gott samband foreldra og kennara getur skipt sköpum um námsframvindu. Við hvetjum því forráðamenn eindregið til að mæta í tíma með barni sínu, og ræða við kennara um verkefni og markmið vetrarins.

Skrifstofan lokuð föstud. 30. sept.

Skrifstofa Tónlistarskóla Árnesinga verður lokuð föstud. 30. sept. Ef koma þarf upplýsingum til kennara, vinsamlegast hafið beint samband við þá. - Sjá símanúmer og netföng hér á heimasíðunni undir Starfsmenn.

Skrifstofa skólans lokuð 6. okt. (allan daginn) og 7. okt. f. hád.

Skrifstofa Tónlistarskóla Árnesinga verður lokuð fimmtd. 6. október, vegna námskeiðs skólastjórnenda og ritara. Skrifstofan verður líka lokuð föstud. 7. okt. fyrir hádegi.   Ef koma þarf upplýsingum til kennara, vinsamlegast hafið beint samband við þá. - Sjá símanúmer og netföng hér á heimasíðunni undir Starfsmenn.

Strengjamót á Selfossi 7. – 9. okt.

7. – 9. október verður haldið strengjamót á Selfossi þar sem saman koma um 200 strengjanemendur alls staðar að af landinu. Að halda utan um eitt svona mót kostar mikinn undirbúning, en Guðmundur Pálsson fiðlukennari heldur um taumana að þessu sinni. Mótið endar með tónleikum í íþróttahúsi Vallaskóla sunnud. 9. okt. kl. 13:00.

Haustfrí 13. – 17. október

Dagana 13. – 17. október er haustfrí í tónlistarskólanum. Öll kennsla fellur niður þessa daga. Sjá: tonlistarskoladagatal-2022-2023.pdf (tonar.is) Frídagarnir 13. og 14. október falla á sömu daga og í flestum grunnskólum Árnessýslu, FSu og ML. Mánudagurinn 17. október er einn af fimm frídögum sem falla á skólaárið vegna styttingar vinnutíma tónlistarskólakennara.

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi