2024-07-16T00:00:00+00:00

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Öskudagur 22. febrúar – frí

Öskudagur miðvikud. 22. febrúar – Starfsdagur Kennsla fellur niður, en kennarar nýta daginn til fundahalda og námskeiða.

Vetrarfrí

Vetrarfrí 27. febrúar – 1. mars. Öll kennsla fellur niður þessa daga.   Vetrarfrí tónlistarskólans er samræmt við flesta grunn- og framhaldsskóla sýslunnar.

Miðdeildartónleikar í Selfosskirkju 15. mars 2023

Miðdeildartónleikar verða haldnir í Selfosskirkju 15. mars, kl. 18:00. Á tónleikunum koma fram nemedur sem lokið hafa grunnprófi. Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og gaman að sjá hve góðum tökum nemendur hafa náð á sín hljóðfæri, þegar hér er komið í tónlistarnáminu. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

Framhaldsdeildartónleikar í Selfosskirkju 16. mars 2023

Framhaldsdeildartónleikar verða haldnir í Selfosskirkju 16. mars, kl. 18:00. Á tónleikunum koma fram nemendur sem lokið hafa miðprófi. Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og gaman að sjá hve góðum tökum nemendur hafa náð á sín hljóðfæri, þegar hér er komið í tónlistarnáminu. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

Prófadagar 21. og 22. mars 2023

Prófadagar 21. og 22. mars Kennsla fellur niður á prófadögum. Ekki taka allir nemendur próf á prófadögum, en það eru kennarar sem meta hvenær nemendur eru tilbúnir til að taka næsta stigspróf. Ef spurningar vakna biðjum við nemendur/foreldra að setja sig í samband við kennara.

Smiðjuvikan 27. – 31. mars – námskeið/smiðjur í stað kennslu

Í síðustu viku marsmánaðar brjótum við upp hefðbundna kennslu og bjóðum nemendum okkar upp á alls konar námskeið eða smiðjur í staðinn.   Miðað er við að: Nemendur í hálfu námi sæki a.m.k. 1 klst. smiðju Nemendur í heilu námi sæki a.m.k. 2 klst. af smiðjum. - Nemendur sæki a.m.k. eina smiðju í heimasveit, en geta valið til viðbótar smiðju eftir óskum/áhugasviði.   Skráning í smiðjur fer fram í gegnum kennara, en HÉR má sjá hvaða smiðjur eru í boði á hverjum kennslustað og hvenær. (Hver kennslustaður er í sér flipa). Upplýsingar um viðfangsefni hverrar smiðju má sjá með því að setja [...]

Páskafrí

Páskafrí 1. – 11. apríl. ATH. að páskafrí tónlistarskólans er einum degi lengra en hjá grunnskólunum. Kennsla hefst aftur eftir páskafrí miðvikudaginn 12. apríl.

Frí 20. og 21. apríl

Kennsla fellur niður 20. og 21. apríl Fimmtud. 20. apríl - Sumardagurinn fyrsti Föstud. 21. apríl – Frídagur í tónlistarskólanum vegna styttingar vinnutíma

Framhaldsprófstónleikar Hildar Tönju í Hveragerðiskirkju 15. maí

Hildur Tanja Karlsdóttir lýkur framhaldsprófi í fiðluleik frá Tónlistarskóla Árnesinga með opinberum tónleikum í Hveragerðiskirkju 15. maí kl. 18:00                            Hvetjum við Sunnlendinga til að nýta sér þetta góða tækifæri til að hlýða á glæsilega tónleika, enda liggur mikil vinna að baki þegar kemur að útskrift frá skólanum. Á dagskrá eru verk eftir Bach, Mozart, Prokofiev, Grieg og Williams. Meðleikarar: Miklós Dalmay píanó og Elísabet Anna Dudziak fiðla. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi