2024-07-16T00:00:00+00:00

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

19. og 20. desember – jólaspilamennska

Jólaspilamennska. Síðustu tvo kennsludaga fyrir jólafrí (19. og 20. desember) fellur niður hefðbundin kennsla, en í staðinn fara kennarar með nemendur sína út í samfélagið og leika jólalög og aðra fallega tónlist fyrir unga sem aldna samborgara. Það er hefð fyrir því að umbreyta kennslu síðustu tveggja kennsludaga fyrir jólafrí í spilamennsku úti í bæ. Kennarar flögra þá með nemendur sína út í samfélagið og leika fyrir fólk á öllum aldri. Má nefna hjúkrunar- og elliheimili, samkomur félagasamtaka, verslanir, leikskóla og þátttöku í litlu-jólum grunnskólanna. Því miður náum við ekki að fara með alla okkar nemendur svona út í bæ, en kennarar [...]

Jólafrí

Jólafrí tónlistarskólans hefst 21. desember. Kennsla hefst á ný 4. janúar 2023

Dagur tónlistarskólanna 7. febrúar

Dagur tónlistarskólanna. Á Degi tónlistarskólanna 7. febrúar, efna tónlistarskólarnir til árlegrar hátíðar um allt land. Meðal viðburða má nefna opið hús, tónleika, hljóðfærakynningar og ýmiskonar námskeið auk þess sem nemendur heimsækja vinnustaði, heilbrigðisstofnanir og aðra skóla og flytja tónlist. Á haustþingi Samtaka tónlistarskólastjóra árið 2019 var samþykkt að Dagur tónlistarskólanna skyldi vera 7. febrúar, í tilefni af fæðingardegi Gylfa Þ. Gíslasonar, sem var menntamálaráðherra frá 1956 – 1971. Úr greinargerð með tillögunni: Gylfi Þ. Gíslason var mikill áhrifavaldur hvað varðar tónlistarkennslu og beitti sér fyrir umbótum á því sviði. Með því að Dagur tónlistarskólanna sé á fæðingardegi Gylfa Þ. Gíslasonar, heiðrum við minningu [...]

Öskudagur 22. febrúar – frí

Öskudagur miðvikud. 22. febrúar – Starfsdagur Kennsla fellur niður, en kennarar nýta daginn til fundahalda og námskeiða.

Vetrarfrí

Vetrarfrí 27. febrúar – 1. mars. Öll kennsla fellur niður þessa daga.   Vetrarfrí tónlistarskólans er samræmt við flesta grunn- og framhaldsskóla sýslunnar.

Miðdeildartónleikar í Selfosskirkju 15. mars 2023

Miðdeildartónleikar verða haldnir í Selfosskirkju 15. mars, kl. 18:00. Á tónleikunum koma fram nemedur sem lokið hafa grunnprófi. Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og gaman að sjá hve góðum tökum nemendur hafa náð á sín hljóðfæri, þegar hér er komið í tónlistarnáminu. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

Framhaldsdeildartónleikar í Selfosskirkju 16. mars 2023

Framhaldsdeildartónleikar verða haldnir í Selfosskirkju 16. mars, kl. 18:00. Á tónleikunum koma fram nemendur sem lokið hafa miðprófi. Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og gaman að sjá hve góðum tökum nemendur hafa náð á sín hljóðfæri, þegar hér er komið í tónlistarnáminu. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

Prófadagar 21. og 22. mars 2023

Prófadagar 21. og 22. mars Kennsla fellur niður á prófadögum. Ekki taka allir nemendur próf á prófadögum, en það eru kennarar sem meta hvenær nemendur eru tilbúnir til að taka næsta stigspróf. Ef spurningar vakna biðjum við nemendur/foreldra að setja sig í samband við kennara.

Smiðjuvikan 27. – 31. mars – námskeið/smiðjur í stað kennslu

Í síðustu viku marsmánaðar brjótum við upp hefðbundna kennslu og bjóðum nemendum okkar upp á alls konar námskeið eða smiðjur í staðinn.   Miðað er við að: Nemendur í hálfu námi sæki a.m.k. 1 klst. smiðju Nemendur í heilu námi sæki a.m.k. 2 klst. af smiðjum. - Nemendur sæki a.m.k. eina smiðju í heimasveit, en geta valið til viðbótar smiðju eftir óskum/áhugasviði.   Skráning í smiðjur fer fram í gegnum kennara, en HÉR má sjá hvaða smiðjur eru í boði á hverjum kennslustað og hvenær. (Hver kennslustaður er í sér flipa). Upplýsingar um viðfangsefni hverrar smiðju má sjá með því að setja [...]

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi