Prófadagar 31. mars – 2. apríl. Kennsla fellur niður
Prófadagar verða 31. mars - 2. apríl. Á prófadögum fellur kennsla niður, en kennarar eru á ferð og flugi að fylgja nemendum í próf og að dæma próf. Ekki taka allir nemendur próf á prófadögum, heldur meta kennarar hvenær nemendur eru tilbúnir að þreyta næsta stigs- eða áfangapróf. Nánari upplýsingar um námsmat í Tónlistarskóla Árnesinga má finna hér: Námsmat — Tónlistarskóli Árnesinga
Vortónleikar blásarasveitanna 4. apríl í Stekkjaskóla (á jarðhæð í suðurenda)
Vortónleikar blásarasveitanna 4. apríl kl. 16:30 á jarðhæð í suðurenda Stekkjaskóla. Blásarasveitir skólans á Selfossi og í Þorlákshöfn leiða saman hesta sína með sameiginlegum æfingadegi (og pizzum :), sem endar með vortónleikum. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir 😊
Píanó-hringekjutónleikar með fjór- og sexhentum lögum 7. apríl
Píanó-hringekjutónleikar 7. apríl kl. 18:30 í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi. Á tónleikunum leika píanónemendur fjórhent og sexhent lög á píanó og skiptast á um að leika á flygil og píanó. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Verið öll hjartanlega velkomin!
Páskafrí
Páskafrí 12. – 21. apríl. Öll kennsla fellur niður þessa daga.
Sumardagurinn fyrsti 24. apríl- frí
Sumardagurinn fyrsti 24. apríl– frí.
„Burtu með fordóma“ – Tónleikar 1. maí í íþróttahúsi Vallaskóla
Þann 1. maí kl. 15:00 verða haldnir tónleikar í íþróttahúsi Vallaskóla sem bera heitið "Burtu með fordóma". Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands, Tónlistarskóla Árnesinga, allra leikskóla í Sveitarfélaginu Árborg og Menningar- og upplýsingadeildar Árborgar. Tvíeykið Gunni og Felix sér um að tengja atriðin saman og syngja, en stjórnandi tónleikanna er Guðmundur Óli Gunnarsson. Miðaverð er 500 kr. - sjá hér: Burtu með fordóma | Tix