2024-07-16T00:00:00+00:00

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Rytmískir deildartónleikar 10. nóv. – Sal skólans, Eyravegi 9

Rytmískir deildartónleikar verða haldnir í sal tónlistarskólans, Eyravegi 9 á Selfossi. fös. 10. nóv. kl. 17:00 Á þessum tónleikum er fókusinn á alls konar stærri og smærri samspil. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

Jólaspil utan skólans

19. og 20. desember er kennsla óhefðbundin. Í stað kennslu þessa daga farar kennarar með nemendur út í samfélagið og leika jólalög og aðra fallega tónlist fyrir samborarana. Sú spilamennska fer oft fram á öðrum dögum í desember, eða allt eftir því hvenær hægt er að heimsækja t.d. hjúkrunarheimili, leikskóla, verslanir, viðburði og annað sem óskað hefur verið eftir. Þá taka margir nemendur og kennarar tónlistarskólans virkan þátt í litlu-jólum grunnskólanna þessa daga og leika undir dansi í kringum jólatré. /Helga Sighv.

Jólafrí

Jólafrí verður 21. desember 2023  til 3. janúar 2024. - Kennsla hefst á ný samkvæmt stundaskrá, fimmtud. 4. janúar.

Foreldraheimsóknavika

Foreldraheimsóknarvikan 8. – 12. janúar Í heimsóknarvikunni eru foreldrar sérstaklega boðnir velkomnir í tíma með barni sínu. Ég hvet foreldra til að nýta þennan heimsóknartíma til að fara yfir miðsvetrarmatið og verkefni vorannar með kennurum. Auk þess að mæta í þessa formlegu heimsóknartíma eru foreldrar alltaf velkomnir í tíma og þurfa ekki að gera boð á undan sér.

Starfsdagur 14. febrúar (öskudag)

Miðvikudaginn 14. febrúar (öskudag) fellur niður öll kennsla í Tónlistarskóla Árnesinga. Daginn nýta kennarar til fundahalda og námskeiða.

Vetrarfrí 19. – 23. febrúar

Vetrarfrí Tónlistarskóla Árnesinga stendur frá 19. - 23. febrúar. 19. og 20. febrúar eru sameiginlegir grunnskólunum og FSu, en 21. - 23. febrúar eru vegna styttingar vinnuviku tónlistarkennara.  

Tónleikar Sólrúnar Bragadóttur ásamt söngnemendum 28. febrúar

Sólrún Bragadóttir og Jón Sigurðsson efna til samstarfs við nemendur Tónlistarskóla Árnesinga með tónleikum á Selfossi og Desert Pálínuboði á eftir svo fólk geti spjallað við listafólkið og hvert annað! Á efnisskránni eru m.a. verk eftir Jean Sibelius, Richard Strauss, Hugo Wolf, Robert Schumann G.F. Haendel, Ernest Chausson ofl. Staður: Tónlistarskóli Árnesinga, Eyravegi 9 Selfossi, 3. hæð Stund: Miðvikud. 28. febrúar kl. 20:00 Miðaverð: 3000 kr. Frítt fyrir nemendur og kennara Tónlistarskóla Árnesinga Sjá nánar hér: Tónleikar með nemendum í Tónlistarskóla Árnesinga og desert Pálínuboð | Facebook  

Tónleikar blokkflautunemenda og gesta frá Færeyjum 10. mars

Dagana 8. - 10. mars verða haldnar æfingabúðir blokkflautusveita Tónlistarskóla Árnesinga, ásamt færeyskum blokkflautunemendum. Æfð verða samspilslög úr ýmsum áttum, s.s. færeysk og íslensk þjóðlög, renesansdansar, dægurlög og tangóar, sem verða svo flutt á tónleikum 10. mars. Tónleikarnir verða haldnir í sal skólans Eyravegi 9 á Selfossi (3. hæð) 10. mars kl. 14:00. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi