Svæðistónleikar Flúðum kl. 13
Dagur tónlistarskólanna 9. febrúar 2019 Dagur tónlistarskólanna er haldinn hátíðlegur um allt land laugard. 9. febrúar. Í tilefni dagsins stendur Tónlistarskóli Árnesinga fyrir sex svæðistónleikum í Árnessýslu. Nemendur úr Hrunamannahreppi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi leika á tónleikum í Félagsheimilinu Flúðum kl. 13:00 – Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir! – – – – Þessir tónleikar eru um leið valtónleikar fyrir Nótuna (uppskeruhátíð tónlistarskólanna). Áheyrendur fá að taka þátt í vali á því atriði sem þeim þykir skara framúr á tónleikunum, með því að tilnefna tvö atriði. Þau atriði sem fá flest stig fara í pott sem deildarstjórar velja úr [...]
Svæðistónleikar í Þorlákskirkju kl. 15
Dagur tónlistarskólanna 9. febrúar 2019 Dagur tónlistarskólanna er haldinn hátíðlegur um allt land laugard. 9. febrúar. Í tilefni dagsins stendur Tónlistarskóli Árnesinga fyrir sex svæðistónleikum í Árnessýslu. Nemendur úr Þorlákshöfn, frá Stokkseyri og Eyrarbakka leika á tónleikum í Þorlákskirkju kl. 15:00 – Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir! – – – – Þessir tónleikar eru um leið valtónleikar fyrir Nótuna (uppskeruhátíð tónlistarskólanna). Áheyrendur fá að taka þátt í vali á því atriði sem þeim þykir skara framúr á tónleikunum, með því að tilnefna tvö atriði. Þau atriði sem fá flest stig fara í pott sem deildarstjórar velja úr fyrir Nótuna.
Svæðistónleikar í Hveragerðiskirkju kl. 17
Dagur tónlistarskólanna 9. febrúar 2019 Dagur tónlistarskólanna er haldinn hátíðlegur um allt land laugard. 9. febrúar. Í tilefni dagsins stendur Tónlistarskóli Árnesinga fyrir sex svæðistónleikum í Árnessýslu. Nemendur úr Hveragerði leika á tónleikum í Hveragerðiskirkju kl. 17:00 – Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir! – – – – Þessir tónleikar eru um leið valtónleikar fyrir Nótuna (uppskeruhátíð tónlistarskólanna). Áheyrendur fá að taka þátt í vali á því atriði sem þeim þykir skara framúr á tónleikunum, með því að tilnefna tvö atriði. Þau atriði sem fá flest stig fara í pott sem deildarstjórar velja úr fyrir Nótuna.
Öskudagur 6. mars 2019 – frí
Á öskudegi miðvikud. 6. mars 2019, fellur niður öll kennsla í Tónlistarskóla Árnesinga. Daginn nýta starfsmenn til námskeiðs- og fundahalda.
Námskeið um rytmíska tónlist
Námskeið um rytmíska tónlist verður haldið fimmtud. 14. mars kl. 18:00 – 19:00 í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi. - Fyrirlestur í tónum og tali. Umsjón: Sigurgeir Skafti Flosason, rafbassi Skúli Gíslason, trommur Unnur Birna Björnsdóttir, fiðla og söngur Björn Thoroddsen, rafgítar Kynntar verða ýmsar tónlistartegundir s.s. django, jazz, blús, swing, latin o.fl., leiknir spunastílar og dægurlög. Námskeiðið er öllum opið, en skylda fyrir nemendur á rytmísk hljóðfæri, gítar- og fiðlunemendur 12 ára og eldri. Aðrir nemendur eru að sjálfsögðu hvattir til að mæta líka. Nemendum í rytmísku námi býðst að mæta (í fylgd fullorðinna) á tónleika hópsins í Tryggvaskála 16. [...]
Svæðistónleikar Nótunnar í Salnum Kópavogi
Svæðistónleikar Nótunnar (uppskeruhátíðar tónlistarskólanna) verða haldnir í Salnum Kópavogi, laugard. 16. mars. Eftirtaldir nemendur verða fulltrúar Tónlistarskóla Árnesinga á svæðistónleika Nótunnar, hver úr sínum flokki: Tónleikar kl. 12:00 Eyrún Huld Ingvarsdóttir, fiðla – einleikur Rytmasveitin No Sleep (Gylfi Þór Ósvaldsson rafgítar, Jakob Unnar Sigurðarson rafbassi, Valgarður Uni Arnarson rafgítar og Þröstur Ægir Þorsteinsson trommur) – samspil, opinn flokkur. Tónleikar kl. 14:00 Hrafnkell Örn Blöndal Barkarson, píanó – frumsamið verk Sædís Lind Másdóttir, söngur – einsöngur Að auki tekur Klara Sól Ólafsdóttir, blokkflautunemandi Tónlistarskóla Árnesinga þátt í samleiksatriði með nemendum úr Tónlistarskóla Rangæinga. Verðlaunaafhending kl. 16:00 Við óskum nemendunum [...]
TÓNLIST – möguleikar – nám og starf. Fræðsluerindi
Fræðslufundur fyrir nemendur í framhaldsnámi um náms- og starfsmöguleika tengda tónlist. Haldinn mánud. 18. mars kl. 18:30 – 19:30 í sal skólans að Eyravegi 9, Selfossi. Gestur fundarins er Elín Anna Ísaksdóttir fag- og verkefnastjóri Listaháskóla Íslands. Elín Anna kynnir námið í LHÍ, en að auki verður bent á enn fleiri möguleika sem nemendum með tónlistarlega þekkingu býðst varðandi nám og störf.
Miðdeildartónleikar kl. 18:30 og 19:45
Miðdeildartónleikar verða haldnir mánud. 25. mars í sal skólans Eyravegi 9 Selfossi. Þátttaka er mjög góð í ár og verða að þessu sinni haldnir tvennir tónleikar: Fyrri tónleikarnir kl. 18:30 Seinni tónleikarnir kl. 19:45 Á tónleikunum koma fram nemendur sem lagt hafa að baki fyrsta hluta tónlistarnáms síns. Miðdeildartónleikar eru alltaf metnaðarfullir og fjölbreyttir. Gefst Sunnlendingum gott tækifæri til að skyggnast inn í öfluga starfsemi skólans. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn
Framhaldsdeildartónleikar
Framhaldsdeildartónleikar verða haldnir þriðjud. 26. mars kl. 20:00 í sal skólans Eyravegi 9 Selfossi. Á tónleikunum leika nemendur sem nálgast námslok við skólann. Framhaldsdeildartónleikar eru alltaf metnaðarfullir og fjölbreyttir. Gefst Sunnlendingum gott tækifæri til að skyggnast inn í öfluga starfsemi skólans. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn
Prófadagar 1. – 3. apríl. Engin kennsla
Prófadagar 1. – 3. apríl Á prófadögum fellur niður öll hefðbundin kennsla í tónlistarskólanum. Þeir nemendur sem taka próf fá upplýsingar um prófatíma hjá sínum kennurum. - Nemendur sem taka samræmd áfangapróf (grunnpróf, miðpróf og framhaldspróf) taka próf á Selfossi, en önnur próf fara yfirleitt fram í heimabyggð.