2024-07-17T00:00:00+00:00

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Námskeið um rytmíska tónlist

Námskeið um rytmíska tónlist verður haldið fimmtud. 14. mars kl. 18:00 – 19:00 í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi. - Fyrirlestur í tónum og tali. Umsjón: Sigurgeir Skafti Flosason, rafbassi Skúli Gíslason, trommur Unnur Birna Björnsdóttir, fiðla og söngur Björn Thoroddsen, rafgítar Kynntar verða ýmsar tónlistartegundir s.s. django, jazz, blús, swing, latin o.fl., leiknir spunastílar og dægurlög. Námskeiðið er öllum opið, en skylda fyrir nemendur á rytmísk hljóðfæri, gítar- og fiðlunemendur 12 ára og eldri. Aðrir nemendur eru að sjálfsögðu hvattir til að mæta líka. Nemendum í rytmísku námi býðst að mæta (í fylgd fullorðinna) á tónleika hópsins í Tryggvaskála 16. [...]

Svæðistónleikar Nótunnar í Salnum Kópavogi

Svæðistónleikar Nótunnar (uppskeruhátíðar tónlistarskólanna) verða haldnir í Salnum Kópavogi, laugard. 16. mars. Eftirtaldir nemendur verða fulltrúar Tónlistarskóla Árnesinga á svæðistónleika Nótunnar, hver úr sínum flokki: Tónleikar kl. 12:00 Eyrún Huld Ingvarsdóttir, fiðla – einleikur Rytmasveitin No Sleep (Gylfi Þór Ósvaldsson rafgítar, Jakob Unnar Sigurðarson rafbassi, Valgarður Uni Arnarson rafgítar og Þröstur Ægir Þorsteinsson trommur) – samspil, opinn flokkur.   Tónleikar kl. 14:00 Hrafnkell Örn Blöndal Barkarson, píanó – frumsamið verk Sædís Lind Másdóttir, söngur – einsöngur Að auki tekur Klara Sól Ólafsdóttir, blokkflautunemandi Tónlistarskóla Árnesinga þátt í samleiksatriði með nemendum úr Tónlistarskóla Rangæinga.   Verðlaunaafhending kl. 16:00   Við óskum nemendunum [...]

TÓNLIST – möguleikar – nám og starf. Fræðsluerindi

Fræðslufundur fyrir nemendur í framhaldsnámi um náms- og starfsmöguleika tengda tónlist. Haldinn mánud. 18. mars kl. 18:30 – 19:30 í sal skólans að Eyravegi 9, Selfossi.   Gestur fundarins er Elín Anna Ísaksdóttir fag- og verkefnastjóri Listaháskóla Íslands. Elín Anna kynnir námið í LHÍ, en að auki verður bent á enn fleiri möguleika sem nemendum með tónlistarlega þekkingu býðst varðandi nám og störf.

Miðdeildartónleikar kl. 18:30 og 19:45

Miðdeildartónleikar verða haldnir mánud. 25. mars  í sal skólans Eyravegi 9 Selfossi.   Þátttaka er mjög góð í ár og verða að þessu sinni haldnir tvennir tónleikar: Fyrri tónleikarnir kl. 18:30 Seinni tónleikarnir kl. 19:45   Á tónleikunum koma fram nemendur sem lagt hafa að baki fyrsta hluta tónlistarnáms síns. Miðdeildartónleikar eru alltaf metnaðarfullir og fjölbreyttir. Gefst Sunnlendingum gott tækifæri til að skyggnast inn í öfluga starfsemi skólans. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn

Framhaldsdeildartónleikar

Framhaldsdeildartónleikar verða haldnir þriðjud. 26. mars kl. 20:00 í sal skólans Eyravegi 9 Selfossi.   Á tónleikunum leika nemendur sem nálgast námslok við skólann. Framhaldsdeildartónleikar eru alltaf metnaðarfullir og fjölbreyttir. Gefst Sunnlendingum gott tækifæri til að skyggnast inn í öfluga starfsemi skólans. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn

Prófadagar 1. – 3. apríl. Engin kennsla

Prófadagar 1. – 3. apríl Á prófadögum fellur niður öll hefðbundin kennsla í tónlistarskólanum. Þeir nemendur sem taka próf fá upplýsingar um prófatíma hjá sínum kennurum. - Nemendur sem taka samræmd áfangapróf (grunnpróf, miðpróf og framhaldspróf) taka próf á Selfossi, en önnur próf fara yfirleitt fram í heimabyggð.  

Fjáröflunartónleikar Suzuki-blokkflautunemenda

Fjáröflunartónleikar Suzuki-blokkflautunemenda verða sunnud. 7. apríl kl. 16:00 í sal tónlistarskólans Eyravegi 9 á Selfossi.   Safnað er fyrir námsferð til Malvern á Englandi í sumar. Á tónleikunum verða seldar vöfflur, kaffi og heitt kakó.   Allir hjartanlega velkomnir

Páskafrí

Páskafrí verður dagana 13. - 22. apríl. Kennsla hefst aftur eftir páskafrí þriðjud. 23. apríl.

Umsóknir nemenda í námi – umsóknarfrestur til 1. maí

Umsóknir fyrir næsta vetur. Umsóknarfrestur nemenda í námi er til 1. maí 2019. Sótt er um í gegnum foreldragátt á heimsíðu skólans www.tonar.is (eða í nemendaskrá https://schoolarchive.is/innskraning) Sjá nánar hér: Dreifibréf Umsókn eldri nema 2019  

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi