2024-07-17T00:00:00+00:00

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Undirleikstímar hefjast 9. september

Undirleikstímar söngnemenda og nemenda í föstum undirleik (í 5. stigi og ofar) hefjast 9. september. Sjá A og B vikur í skóladagatali hér fyrir ofan.

Foreldraheimsóknarvika 9. – 13. september

Foreldraheimsóknarvika verður 9. - 13. september. Í þeirri viku eru foreldrar sérstaklega boðnir velkomnir með börnum sínum í tíma. Í heimsóknartímanum fer kennarinn yfir viðfangsefni og markmið vetrarins með nemanda og foreldrum. Við hvetjum alla foreldra til að mæta í heimsóknarvikunni, en foreldrum er að sjálfsögðu alltaf velkomið að mæta með nemanda og fylgjast með venjulegri kennslustund hvenær sem er.

Málþing í Hörpu – Framtíð tónlistarskólanna – Hvert stefnum við?

Í tilefni af 50 ára afmæli Samtaka tónlistarskólastjóra (STS) efna samtökin til málþings í Kaldalóni í Hörpu föstudaginn 27. september. Yfirskrift málþingsins er "Framtíð tónlistarskólanna - hvert stefnum við ? " - sjá dagskrá málþingsins í meðfylgjandi auglýsingu:  4MÁLÞING-A3+POSTER CV Fulltrúar stjórnvalda, menningarmála, háskólasamfélagsins, tónlistarkennara, foreldra, Sinfóníuhljómsveitar Íslands og ÚTÓN hafa verið kallaðir til, til að heyra um væntingar þeirra til tónlistarskólanna og framtíðarsýn. Marc Erkens, sem hélt hrífandi tónleikafyrirlestur fyrir STS félaga í Belgíu sl. haust, mun einnig koma fram á málþinginu. Fjölbreytt atriði koma frá tónlistarskólunum og tvíeykið vinsæla "Hundur í óskilum" mun skemmta gestum. Aðgangur að málþinginu er ókeypis og öllum opinn.

Starfsdagur 10. október – kennsla fellur niður

Kennsla fellur niður fimmtud. 10. október vegna starfsdags. Þennan dag sækja kennarar fundi og námskeið á haustþingi tónlistarskólakennara fyrir Suðurland og Suðurnes. Þingið er að þessu sinni haldið á Eyrarbakka.

Haustfrí

Haustfrí Tónlistarskóla Árnesinga verður dagana 17. - 21. október. Kennsla fellur niður þessa daga.

Blásaradeildartónleikar í Sunnulækjarskóla

Sunnulækjarskóla Norðurhólum 1, Selfossi

Blásaradeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir í Sunnulækjarskóla miðvikud. 30. október 2019, kl. 18:00. Á tónleikunum koma fram blásarasveitirnar fjórar (frá Selfossi og Þorlákshöfn), ásamt fjölda einleikara og smærri samspilshópa. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.   Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Blokkflautudeildartónleikar í Sunnulækjarskóla

Blokkflautudeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir mánud. 4. nóvember 2019 kl. 19:00, í Sunnulækjarskóla á Selfossi. Á tónleikunum koma fram yngri og eldri blokkflautusveitir, Suzukihóparnir þrír (Flautustubbar, Flautusnúðar & Flautusnillingar), auk einleiksatriða. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.   Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Gítardeildartónleikar í Listasafni Árnesinga í Hveragerði

Gítardeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir þriðjud. 5. nóvember 2019, kl. 18:00, í Listasafni Árnesinga, Austurmörk 21 í Hveragerði. Á tónleikunum koma fram allar gítarsveitir og Suzuki-gítarhópar skólans. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.   Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Strengjadeildartónleikar í Selfosskirkju

Strengjadeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir miðvikud. 6. nóvember 2019 kl. 18:00, í Selfosskirkju. Á tónleikunum koma fram yngri og eldri strengjasveitir, fiðlu-, víólu- og selló-Suzukihópar. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.   Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi