2024-07-17T00:00:00+00:00

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Sædís Lind Másdóttir – Framhaldsprófstónleikar í Hveragerðiskirkju

Framhaldsprófstónleikar Sædís Lind Másdóttir syngur á framhaldsprófstónleikum í Hveragerðiskirkju, fimmtud. 16. maí kl. 20:00. Með tónleikunum lýkur Sædís Lind söngnámi frá Tónlistarskóla Árnesinga.   Á dagskrá eru m.a. verk eftir Pál Ísólfsson, Loft Guðmundsson, Jórunni Viðar, Jón Þórarinsson, Bach, Braga, Brahms, Lehar og Puccini.   Meðleikur á píanó: Einar Bjartur Egilsson Aðrir flytjendur: Berglind María Ólafsdóttir söngur, Karítas Birna Eyþórsdóttir fiðla og Sönghópur.   Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Skólaslit vorið 2019

Skólaslit vorið 2019 verða sem hér segir:   föstud. 17. maí 16:00 Flúðir – Félagsheimili Hrunamanna 18:00 Þorlákshöfn – Ráðhúsinu   mánud. 20. maí 16:00 Hveragerði – Hveragerðiskirkju 18:00 Selfoss – Sunnulækjarskóla   þriðjud. 21. maí 16:00 Stokkseyri/Eyrarbakki – Grunnskólanum Stokkseyri 18:00 Laugarvatn – Grunnskólanum   miðvikud. 22. maí 10:00 Kerhólsskóli 16:00 Þjórsárskóli – Félagsheimilinu Árnesi   fimmud. 23. maí 16:00 Flóaskóli – Félagsheimilinu Þjórsárveri 18:00 Reykholt – Félagsheimilinu Aratungu

Karolina Konieczna – fiðlu- og söngtónleikar í sal skólans Selfossi

Fiðlu- og söngtónleikar Karolina Konieczna heldur fiðlu- og söngtónleika  í sal skólans Eyravegi 9 á Selfossi, miðvikud. 22. maí kl. 18:00.   Meðleikur á píanó: Einar Bjartur Egilsson Á dagskrá eru m.a. verk eftir Pugnani, Bach, Gluck og Mozart Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Umsóknir nýnema – umsóknarfrestur til 1. júní

Umsóknir nýnema fyrir veturinn 2019 - 2020. Umsóknarfrestur nýnema er til 1. júní 2019. Sótt er um á heimsíðu skólans www.tonar.is - UMSÓKN UM SKÓLAVIST Sjá nánar hér: Dreifibréf 2019 (dreift á öll heimili í Árnessýslu í byrjun maí). og á heimasíðu Tónlistarskóla Árnesinga www.tonar.is.  

Skrifstofan opnar 7. ágúst

Skrifstofa Tónlistarskóla Árnesinga opnar aftur eftir sumarleyfi þann 7. ágúst. - - - Tónlistarskóli Árnesinga Eyravegi 9, 800 Selfossi Sími: 482 1717 Netfang: tonar@tonar.is Veffang: www.tonar.is

Innritunardagar

Þeir nemendur sem fengið hafa skólavist í Tónlistarskóla Árnesinga veturinn 2019- 2020 hafa fengið sendan tölvupóst. Skólavist þarf að staðfesta með greiðslu skólagjalda fyrir 15. ágúst, en greiðsla skólagjalda fer fram með rafrænum hætti. Sjá nánari upplýsingar í tölvupósti. Þeir nemendur sem ekki ætla að nýta sér kennslu tónlistarskólans í vetur eru vinsamlegast beðnir um að láta strax vita, með því að hringja í síma 482 1717 eða senda tölvupóst á netfang skólans, tonar@tonar.is.

Kennsla hefst 28. ágúst

Kennsla hefst miðvikud. 28. ágúst 2019. (Kennarar hafa samband við nemendur vegna stundutöflugerðar á starfsdögum 21. - 27. ágúst).

Undirleikstímar hefjast 9. september

Undirleikstímar söngnemenda og nemenda í föstum undirleik (í 5. stigi og ofar) hefjast 9. september. Sjá A og B vikur í skóladagatali hér fyrir ofan.

Foreldraheimsóknarvika 9. – 13. september

Foreldraheimsóknarvika verður 9. - 13. september. Í þeirri viku eru foreldrar sérstaklega boðnir velkomnir með börnum sínum í tíma. Í heimsóknartímanum fer kennarinn yfir viðfangsefni og markmið vetrarins með nemanda og foreldrum. Við hvetjum alla foreldra til að mæta í heimsóknarvikunni, en foreldrum er að sjálfsögðu alltaf velkomið að mæta með nemanda og fylgjast með venjulegri kennslustund hvenær sem er.

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi