2024-07-17T00:00:00+00:00

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Dagur tónlistarskólanna – tónleikar kl. 10:00 í Aratungu og á Selfossi

Dagur tónlistarskólanna verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 8. febrúar 2020, með þrennum tónleikum á Selfossi og fernum svæðistónleikum sem dreifast um sýsluna. Á tónleikunum þessa líflega dags má sjá þverskurð af nemendahópnum, því allir kennarar skólans senda nemendur til leiks. Þema vetrarins og tónleikanna er „Tölvuleikja- og teiknimyndatónlist“ og spennandi að sjá hvernig það litar daginn. Tónleikar verða haldnir sem hér segir: 10:00 í Félagsheimilinu Aratungu (nemendur úr Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppi) 10:00 í sal skólans Eyravegi 9, Selfoss 12:00 í Félagsheimilinu Árnesi (nemendur úr Hrunamannahreppi, Skriða- og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi) 12:00 í sal skólans Eyravegi 9, Selfoss 14:15 í Hveragerðiskirkju 14:15 [...]

Dagur tónlistarskólanna – tónleikar kl. 12:00 í Árnesi og á Selfossi

Dagur tónlistarskólanna – tónleikar kl. 14:15 í Hveragerðiskirkju og á Selfossi

Dagur tónlistarskólanna verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 8. febrúar 2020, með þrennum tónleikum á Selfossi og fernum svæðistónleikum sem dreifast um sýsluna. Á tónleikunum þessa líflega dags má sjá þverskurð af nemendahópnum, því allir kennarar skólans senda nemendur til leiks. Þema vetrarins og tónleikanna er „Tölvuleikja- og teiknimyndatónlist“ og spennandi að sjá hvernig það litar daginn. Tónleikar verða haldnir sem hér segir: 10:00 í Félagsheimilinu Aratungu (nemendur úr Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppi) 10:00 í sal skólans Eyravegi 9, Selfoss 12:00 í Félagsheimilinu Árnesi (nemendur úr Hrunamannahreppi, Skriða- og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi) 12:00 í sal skólans Eyravegi 9, Selfoss 14:15 í Hveragerðiskirkju 14:15 [...]

Dagur tónlistarskólanna – tónleikar kl. 16:00 í Þorlákskirkju

Strengjakvartett og vinir á Listasafninu

Laugardaginn 15. febrúar kl. 14:00 leikur strengjakvartett skólans á tónleikum í Listasafni Árnesinga í Hveragerði. Kvartettinn skipa þær Arndís Hildur Tyrfingsdóttir á víólu, Elísabet Anna Dudziak og Ingibjörg Ólafsdóttir á fiðlur og Katrín Birna Sigurðardóttir á selló. Auk kvartettins koma fram Ragnar Geir Brynjólfsson á kontrabassa, Guðmundur Kristmundsson á víólu og Einar Bjartur Egilsson sem leikur á píanó. Á dagskrá er kafli úr kvartett eftir Alexander Borodin og nokkur lög úr kvikmyndum, eftir Astor Piazzolla, Ennio Morricone og Nino Rota. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Miðdeildartónleikar í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi

Miðdeildartónleikar mánud. 16. mars kl. 18:45, í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi Á miðdeildartónleikum koma fram nemendur sem lokið hafa grunnprófi og stefna að 4. stigi eða miðprófi. Þetta er öflugur hópur nemenda sem hefur náð góðum grunntökum í hljóðfæraleik/söng. Verkefnaval er fjölbreytt og oft á tíðum nokkuð krefjandi. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Framhaldsdeildartónleikar í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi

Framhaldsdeildartónleikar þriðjud. 17. mars kl. 18:15, í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi Á tónleikunum koma fram nemendur sem lokið hafa miðpróf í tónlist og stefna að 6. stigi eða framhaldsprófi. Þessi nemendahópur hefur öðlast mikla leikni í hljóðfæraleik/söng og gaman að heyra krefjandi og metnaðarfull verkefni í flutningi þeirra. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Prófadagar 23.-25. mars – öll kennsla fellur niður

Dagana 23. - 25. mars fellur öll kennsla niður í Tónlistarskóla Árnesinga vegna prófa. Ekki taka allir nemendur próf og helgast það af því hvar þeir eru staddir í námi. T.d. líður lengra á milli prófa hjá nemendum í hálfu námi; og að afloknu grunnprófi (3. stigi) líða alla jafna tvö ár á milli prófa. Nánari upplýsingar er að fá hjá viðkomandi kennara. Um 240 - 250 nemendur munu taka próf á prófadögum. Í stað kennslu eru kennarar því uppteknir þessa daga, við að fylgja nemendum í próf eða að prófdæma. Við óskum próftökum góðs gengis.

Strengjakvartett TÁ á Nótunni í Hörpu

Nótan sunnud. 29. mars, í Hörpu Uppskeruhátíð tónlistarskólanna, NÓTAN, fagnar 10 ára afmæli í ár. Tímamótunum verður fagnað með tónleikaröð í Eldborgarsal Hörpu frá kl. 11 - 15, sunnudaginn 29. mars og er þemað að þessu sinni samspil og hljómsveitir. Á tónleikunum mætast nemendur af öllu landinu, þar á meðal strengjakvartett frá Tónlistarskóla Árnesinga, skipaður þeim Arndísi Hildi á víólu, Elísabet Önnu og Ingibjörgu Ólafsdóttur á fiðlur og Katrínu Brinu á selló. Samhliða tónleikunum fara fram tónlistarsmiðjur og konsertveisla. Lokaathöfn afmælishátíðar verður svo kl. 16 – 17. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu KÍ: http://gamli.ki.is/um-ki/utgafa/frettir/vidburdir/5576-notan-2020

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi