2024-07-17T00:00:00+00:00

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Lúðrasveitamaraþon í Hörpu

Sunnudaginn 17. nóvember taka eldri blásarasveitir Tónlistarskóla Árnesinga á Selfossi og í Þorlákshöfn, þátt í lúðrasveitamaraþoni í Silfurbergi í Hörpu. Fram koma skólalúðrasveitir af öllu landinu og leika frá kl. 11:00 - 18:00. Blásarasveitirnar okkar stíga á svið kl. 13:00 - 13.30. Aðgangur er ókeypis og þetta því tilvalið tækifæri til að koma og hlusta á áhugaverða tónlist með áhugasömum flytjendum.  

Hausttónleikar í lok nóvember

Í lok nóvember hefjast hausttónleikar skólans þar sem hver kennari fyrir sig (eða fleiri saman eftir fjölda nemenda) heldur tónleika með sínum nemendum. Nánari upplýsingar um stund og stað fá nemendur hjá sínum kennurum.

Eyrún Huld með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna

30. nóvember kl. 16:00 mun Eyrún Huld Ingvarsdóttir, fiðlunemandi skólans leika með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna í Seltjarnarneskirkju. Eyrúnu Huld hlaut þennan heiður, þegar hún var valin úr glæsilegum hópi fiðluleikara á lokatónleikum Nótunnar í Hofi á Akureyri sl. vor.

Eldri blokkflautusveit með Sinfóníuhljómsveit Íslands 14. og 15. des.

14. og 15. desember kl. 14:00 og 16:00 báða dagana, mun eldri blokkflautusveit Tónlistarskóla Árnesinga leika með Sinfónlíuhljómsveit Íslands á jólatónleikum sveitarinnar. Þetta er einstaklega spennandi verkefni og mikil tilhlökkun að spila með hljómsveitinni á Eldborgarsviði Hörpu.

Kertatónleikar strengjasveitar í Listasafninu

Eldri strengjasveit hefur það sem fasta venju í desember, að halda svonefnda kertatónleika í Listasafni Árnesinga í Hveragerði. Þetta eru sérlega notalegir tónleikar þar sem tónlistin fær að njóta sín í mildri birtu kertaljósa og týra af ýmsu tagi. Tónleikarnir verða að þessu sinni haldnir miðvikud. 18. desember kl. 20:00 og eru allir hjartanlega velkomnir.

Umbreytt kennsla 19. og 20. desember

Síðustu tvo kennsludagana fyrir jólafrí fellur niður öll hefðbundin kennsla, en í staðinn fara kennarar með nemendur í heimsóknir á hjúkrunarheimili, í leikskóla, leika á litlu jólum grunnskólanna, á fundum, í verslunum o.fl. o.fl. Því miður náum við ekki að fara með alla okkar nemendur svona út í bæ, en kennarar hafa í nógu að snúast. Þetta tónleikahald getur verið hvenær sem er í desember, allt eftir því hvað hentar á stöðunum sem við heimsækjum. - Það er mjög ánægjulegt að geta með þessu móti opnað skólann út í samfélagið og glatt samborgarana.

Jólafrí

Jólafrí hefst laugard. 21. desember.

Foreldraheimsóknavika 13. – 17. janúar 2020

Foreldraheimsóknavika vorannar verður 13. - 17. janúar. Þessa viku eru foreldrar sérstaklega boðnir velkomnir í tíma með börnum sínum (18 ára og yngri). Í heimsóknartímanum fer kennari m.a. yfir miðsvetrarmat, námsframvindu, hvort nemandinn taki próf á önninni og hvaða tónleikar eru framundan. Vinsamlegast hafið samband við kennara ef tíminn þessa viku hentar ekki og finnið annan tíma.

Dagur tónlistarskólanna – tónleikar kl. 10:00 í Aratungu og á Selfossi

Dagur tónlistarskólanna verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 8. febrúar 2020, með þrennum tónleikum á Selfossi og fernum svæðistónleikum sem dreifast um sýsluna. Á tónleikunum þessa líflega dags má sjá þverskurð af nemendahópnum, því allir kennarar skólans senda nemendur til leiks. Þema vetrarins og tónleikanna er „Tölvuleikja- og teiknimyndatónlist“ og spennandi að sjá hvernig það litar daginn. Tónleikar verða haldnir sem hér segir: 10:00 í Félagsheimilinu Aratungu (nemendur úr Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppi) 10:00 í sal skólans Eyravegi 9, Selfoss 12:00 í Félagsheimilinu Árnesi (nemendur úr Hrunamannahreppi, Skriða- og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi) 12:00 í sal skólans Eyravegi 9, Selfoss 14:15 í Hveragerðiskirkju 14:15 [...]

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi