Öskudagur 5. mars – frí
Á öskudag, miðvikud. 5. mars er engin kennsla, en kennarar sitja fundi og námskeið.
Miðdeildartónleikar í Stekkjaskóla
Miðdeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir miðvikudaginn 19. mars kl. 18:30 í hátíðarsal Stekkjaskóla á Selfossi. Dagskrá er fjölbreytt að vanda og koma nemendur fram á hin ýmsu hljóðfæri. Flytjendur hafa allir lokið grunnprófi (3. stigi) á sitt hljóðfæri og alltaf gaman að fylgjast með þessum þróttmikla hópi. Aðgangur er ókeypis - Verið öll hjartanlega velkomin!
Framhaldsdeildartónleikar Eyravegi 9, Selfossi
Framhaldsdeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir fimmtudaginn 20. mars kl. 18:00 í sal skólans Eyravegi 9 á Selfossi. Flytjendur hafa allir lokið miðprófi (5. stigi) á sitt hljóðfæri og sumir að stefna á framhaldspróf (7. stig) í vor. Dagskrá er fjölbreytt og gaman að fylgjast með leikni nemendanna þegar hér er komið í námi. Aðgangur er ókeypis - Verið öll hjartanlega velkomin!
Prófadagar 31. mars – 2. apríl. Kennsla fellur niður
Prófadagar verða 31. mars - 2. apríl. Á prófadögum fellur kennsla niður, en kennarar eru á ferð og flugi að fylgja nemendum í próf og að dæma próf. Ekki taka allir nemendur próf á prófadögum, heldur meta kennarar hvenær nemendur eru tilbúnir að þreyta næsta stigs- eða áfangapróf. Nánari upplýsingar um námsmat í Tónlistarskóla Árnesinga má finna hér: Námsmat — Tónlistarskóli Árnesinga
Vortónleikar blásarasveitanna 4. apríl í Stekkjaskóla (á jarðhæð í suðurenda)
Vortónleikar blásarasveitanna 4. apríl kl. 17:00 á jarðhæð í suðurenda Stekkjaskóla. Blásarasveitir skólans á Selfossi og í Þorlákshöfn leiða saman hesta sína með sameiginlegum æfingadegi (og pizzum :), sem endar með vortónleikum. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir 😊
Píanó-hringekjutónleikar með fjór- og sexhentum lögum 7. apríl
Píanó-hringekjutónleikar 7. apríl kl. 18:30 í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi. Á tónleikunum leika píanónemendur fjórhent og sexhent lög á píanó og skiptast á um að leika á flygil og píanó. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Verið öll hjartanlega velkomin!
Páskafrí
Páskafrí 12. – 21. apríl. Öll kennsla fellur niður þessa daga.
Sumardagurinn fyrsti 24. apríl- frí
Sumardagurinn fyrsti 24. apríl– frí.
„Burtu með fordóma“ – Tónleikar 1. maí í íþróttahúsi Vallaskóla
Þann 1. maí verða haldnir tónleikar í íþróttahúsi Vallskóla sem bera heitið "Burtu með fordóma". Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands, Tónlistarskóla Árnesinga, allra leikskóla í Sveitarfélaginu Árborg og Menningar- og upplýsingadeildar Árborgar. Tvíeykið Gunni og Felix sér um að tengja atriðin saman og syngja, en stjórnandi tónleikanna er Guðmundur Óli Gunnarsson.