Jólaspilamennska
Jólaspilamennska. 19. og 20. desember er kennsla óhefðbundin. Í stað kennslu þessa daga fara kennarar með nemendur (eftir því sem við verður komið) út í samfélagið að leika jólalög og aðra fallega tónlist fyrir samborgarana. Sú spilamennska fer oft fram á öðrum dögum í desember, eða allt eftir því hvenær hægt er að heimsækja t.d. hjúkrunarheimili, leikskóla, verslanir, viðburði og annað sem óskað hefur verið eftir. Þá taka margir nemendur og kennarar tónlistarskólans virkan þátt í Litlu-jólum grunnskólanna þessa daga og leika undir dansi í kringum jólatré.
Jólafrí
Jólafrí Tónlistarskóla Árnesinga stendur frá 21.12.2024 til 6.1.2025. - mánud. 6. janúar 2025 er frí vegna starfsdags kennara, - þriðjud. 7. janúar 2025 hefst kennsla á ný samkvæmt stundaskrá.
Foreldraheimsóknavika
Foreldraheimsóknavikan 13. – 17. janúar Í þessum formlegu heimsóknartímum er farið yfir miðsvetrarmatið, sem er núna aðgengilegt í SpeedAdmin. Þá er líka horft fram á veginn og markmið vorannar skoðuð. Hvaða tónleikahald er framundan, er stefnt á próf eða ekki (kennari metur hvenær nemandi er tilbúinn til að taka næsta stig), hvað gengur vel og hvað verið er að vinna með þessa stundina. * Auk þess að mæta í þessa formlegu heimsóknartíma eru foreldrar alltaf velkomnir í tíma og þurfa ekki að gera boð á undan sér.
Vetrarfrí
Vetrarfrí Tónlistarskóla Árnesinga verður vikuna 17. - 21. febrúar 2025. 17. og 18. febrúar falla að vetrarfríi stærstu grunnskóla sýslunnar, en 19. - 21. febrúar falla undir styttingu vinnutíma tónlistarskólakennara.