2024-10-28T00:00:00+00:00

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Upphaf kennslu, hóptímar og foreldradagar.

Fyrsti kennsludagur skólaárið 2024-2025 verður 26. ágúst. Starfsdagar kennara verða 19. - 23. ágúst. Kennarar hafa samband við nemendur á starfsdögum. Hóptímar hefjast 2. september. Foreldradagar verða frá 16. september.

Foreldraheimsóknavika

Foreldraheimsóknavika verður dagana 16. – 20. september. Gott samband foreldra og kennara getur skipt sköpum um námsframvindu. Við hvetjum því forráðamenn eindregið til að mæta í tíma með barni sínu, og ræða við kennara um verkefni og markmið vetrarins. - Foreldrar eru að auki velkomnir í kennslustund hvenær sem er.

Nordic Affect í Stokkseyrarkirkju 15. október – semball skólans

Tónlistarskóli Árnesinga festi kaup á sembal sl. vor. Hljóðfærið er keypt frá Klinkhammer-sembalverkstæðinu í Hollandi og fyrirmyndin er semball frá um 1700. Þetta eykur möguleika skólans umtalsvert að flytja renesans- og barokktónlist (16. - 18. aldar tónlist), þar sem söngur, blokkflautur og fleiri hljóðfæri fá notið sín með sembalnum. Semballinn verður notaður í fyrsta sinn á tónleikum Nordic Affect í Stokkseyrarkirkju 15. október kl. 20:00 (Guðrún Óskarsdóttir leikur á sembalinn). Með Nodic Affect koma að auki fram Ian Wilson blokkflautuleikari og Eyjólfur Eyjólfsson söngvari og langspilsleikari, sem einnig er kennari við tónlistarskólann. Tónleikarnir eru hluti af Menningarmánuðinum október í Árborg. /Helga [...]

Haustfrí 17. – 22. október

Haustfrí verður í tónlistarskólanum dagana 17. - 22. október 2024. - Öll kennsla fellur niður þessa daga. ATH. að 17. og 18. október eru sameiginlegir stærstu grunnskólum sýslunnar og FSu, en 21. og 22. október bætast við í tónlistarskólanum vegna styttingar vinnutíma tónlistarkennara.

Iris Kramer Quartet í sal skólans Selfossi 31. október

Iris Kramer Quartet heldur tónleika í sal Tónlistarskóla Árnesinga, Eyravegi 9, þann 31. október kl. 20:00. Tónleikarnir eru hluti af Október-menningarmánuði í Árborg. Sjá nánar hér: Iris Kramer Quartet | Viðburðadagatal | Sveitarfélagið Árborg (arborg.is) Aðgangseyrir 3.500 krónur   Kvartettinn skipa: Iris Kramer: Trumpet, Fluegelhorn, Compositon Henriette Thorun: Bass Jan Hauf: Drums Jonas Oppermann: Piano   Verið öll hjartanlega velkomin!

Deildatónleikaröð í Stekkjaskóla

Dagana 6. - 13. nóvember verða haldnir 6 deildatónleikar í Stekkjaskóla. Miðvd. 6. nóvember – gítardeild kl. 18:30 Fimmtud. 7. nóvember - strengjadeild kl. 18:30 Föstud. 8. nóvember – rytmísk deild kl. 17:00 Mánud. 11. nóvember - píanódeild kl. 18:30 Þriðjud. 12. nóvember - blásaradeild kl. 18:30 Miðvd. 13. nóvember - blokkflautudeild kl. 18:30   Aðgangur að tónleikunum er ókeypis - Verið öll hjartanlega velkomin!

Minningartónleikar í Hveragerðiskirkju 19. nóvember

Minningartónleikar 19. nóvember kl. 19:30 í Hveragerðiskirkju Söngnemendur og nokkrir hljóðfæranemendur Tónlistarskóla Árnesinga, í samstarfi við Söngsveit Hveragerðis, munu flytja lög eftir fyrrum píanókennara skólans Sigfús Ólafsson, sem orðið hefði áttræður í ár. Um leið minnumst við Hjartar Þórarinssonar sem lést í sumar, en hann var einn af stofnendum Tónlistarskóla Árnesinga árið 1955 og fjármálstjóri skólans til fjölda ára. - Ásgeir Sigurðsson, fyrrum skólastjóri Tónlistarskólans, útsetti lögin. Aðgengur að tónleikunum er ókeypis. Verið öll hjartanlega velkomin!                          Sigfús Ólafsson                      Hjörtur [...]

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi