2024-10-28T00:00:00+00:00

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Umsókn um skólavist

Kæru umsækjendur Undir heitinu Dreifibréf 2024, má sjá helstu upplýsingar um nám og námsleiðir í Tónlistarskóla Árnesinga: Dreifibréf 2024 Ef þið óskið eftir tónlistarnámi næsta vetur, smellið á hnappinn: UMSÓKN UM SKÓLAVIST efst hér á heimasíðunni og fyllið út allar umbeðnar upplýsingar. Nemendur sem fá skólavist, fá tölvupóst í ágúst með upplýsingum um greiðslu skólagjalda. Kennslutímabilið byrjar í lok ágúst og stendur til maíloka. Nemendur á blásturs- og strokhljóðfæri geta leigt hljóðfæri af skólanum.   Við bjóðum nýja nemendur hjartanlega velkomna til tónlistarnáms. Helga Sighvatsdóttir, skólastjóri Skrifstofa Eyravegi 9, Selfossi Sími: 482 1717 tonar@tonar.is www.tonar.is Skrifstofan er lokuð frá miðjum júní [...]

Viltu læra á hljóðfæri eða syngja? – Hljóðfæri – Námsleiðir

Viltu læra á hljóðfæri eða syngja? Í skjalinu undir hnappnum HÉR, má nálgast yfirlit yfir allar námsleiðir í Tónlistarskóla Árnesinga og sjá hljóðfærin á einum stað. Sjá HÉR. Til að sækja um nám smellið þið á hnappinn UMSÓKN UM SKÓLAVIST efst á heimsíðunni. Ef spurningar vakna, hvetjum við ykkur til að hafa samband við okkur í ágúst og fá nánari upplýsingar. ATH. Skrifstofan er lokuð til 7. ágúst 2024.

Upphaf kennslu, hóptímar og foreldradagar.

Fyrsti kennsludagur skólaárið 2024-2025 verður 26. ágúst. Starfsdagar kennara verða 19. - 23. ágúst. Kennarar hafa samband við nemendur á starfsdögum. Hóptímar hefjast 2. september. Foreldradagar verða frá 16. september.

Foreldraheimsóknavika

Foreldraheimsóknavika verður dagana 16. – 20. september. Gott samband foreldra og kennara getur skipt sköpum um námsframvindu. Við hvetjum því forráðamenn eindregið til að mæta í tíma með barni sínu, og ræða við kennara um verkefni og markmið vetrarins. - Foreldrar eru að auki velkomnir í kennslustund hvenær sem er.

Nordic Affect í Stokkseyrarkirkju 15. október – semball skólans

Tónlistarskóli Árnesinga festi kaup á sembal sl. vor. Hljóðfærið er keypt frá Klinkhammer-sembalverkstæðinu í Hollandi og fyrirmyndin er semball frá um 1700. Þetta eykur möguleika skólans umtalsvert að flytja renesans- og barokktónlist (16. - 18. aldar tónlist), þar sem söngur, blokkflautur og fleiri hljóðfæri fá notið sín með sembalnum. Semballinn verður notaður í fyrsta sinn á tónleikum Nordic Affect í Stokkseyrarkirkju 15. október kl. 20:00 (Guðrún Óskarsdóttir leikur á sembalinn). Með Nodic Affect koma að auki fram Ian Wilson blokkflautuleikari og Eyjólfur Eyjólfsson söngvari og langspilsleikari, sem einnig er kennari við tónlistarskólann. Tónleikarnir eru hluti af Menningarmánuðinum október í Árborg. /Helga [...]

Haustfrí 17. – 22. október

Haustfrí verður í tónlistarskólanum dagana 17. - 22. október 2024. - Öll kennsla fellur niður þessa daga. ATH. að 17. og 18. október eru sameiginlegir stærstu grunnskólum sýslunnar og FSu, en 21. og 22. október bætast við í tónlistarskólanum vegna styttingar vinnutíma tónlistarkennara.

Iris Kramer Quartet í sal skólans Selfossi 31. október

Iris Kramer Quartet heldur tónleika í sal Tónlistarskóla Árnesinga, Eyravegi 9, þann 31. október kl. 20:00. Tónleikarnir eru hluti af Október-menningarmánuði í Árborg. Sjá nánar hér: Iris Kramer Quartet | Viðburðadagatal | Sveitarfélagið Árborg (arborg.is) Aðgangseyrir 3.500 krónur   Kvartettinn skipa: Iris Kramer: Trumpet, Fluegelhorn, Compositon Henriette Thorun: Bass Jan Hauf: Drums Jonas Oppermann: Piano   Verið öll hjartanlega velkomin!

Deildatónleikaröð í Stekkjaskóla

Dagana 6. - 13. nóvember verða haldnir 6 deildatónleikar í Stekkjaskóla. Miðvd. 6. nóvember – gítardeild kl. 18:30 Fimmtud. 7. nóvember - strengjadeild kl. 18:30 Föstud. 8. nóvember – rytmísk deild kl. 17:00 Mánud. 11. nóvember - píanódeild kl. 18:30 Þriðjud. 12. nóvember - blásaradeild kl. 18:30 Miðvd. 13. nóvember - blokkflautudeild kl. 18:30   Aðgangur að tónleikunum er ókeypis - Verið öll hjartanlega velkomin!

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi