
„Burtu með fordóma“ – Tónleikar 1. maí í íþróttahúsi Vallaskóla
1. maí kl 15:00 - 17:00
Þann 1. maí verða haldnir tónleikar í íþróttahúsi Vallskóla sem bera heitið „Burtu með fordóma“.
Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands, Tónlistarskóla Árnesinga, allra leikskóla í Sveitarfélaginu Árborg og Menningar- og upplýsingadeildar Árborgar. Tvíeykið Gunni og Felix sér um að tengja atriðin saman og syngja, en stjórnandi tónleikanna er Guðmundur Óli Gunnarsson.