Loading view.
All Day
Prófadagar 23.-25. mars – öll kennsla fellur niður
Dagana 23. - 25. mars fellur öll kennsla niður í Tónlistarskóla Árnesinga vegna prófa. Ekki taka allir nemendur próf og helgast það af því hvar þeir eru staddir í námi. T.d. líður lengra á milli prófa hjá nemendum í hálfu námi; og að afloknu grunnprófi (3. stigi) líða alla jafna tvö ár á milli prófa. Nánari upplýsingar er að fá hjá viðkomandi kennara. Um 240 - 250 nemendur munu taka próf á prófadögum. Í stað kennslu eru kennarar því uppteknir þessa daga, við að fylgja nemendum í próf eða að prófdæma. Við óskum próftökum góðs gengis.