Loading view.
Lúðrasveitamaraþon í Hörpu
Sunnudaginn 17. nóvember taka eldri blásarasveitir Tónlistarskóla Árnesinga á Selfossi og í Þorlákshöfn, þátt í lúðrasveitamaraþoni í Silfurbergi í Hörpu. Fram koma skólalúðrasveitir af öllu landinu og leika frá kl. 11:00 - 18:00. Blásarasveitirnar okkar stíga á svið kl. 13:00 - 13.30. Aðgangur er ókeypis og þetta því tilvalið tækifæri til að koma og hlusta á áhugaverða tónlist með áhugasömum flytjendum.