Loading view.
Miðdeildartónleikar kl. 18:30 og 19:45
Miðdeildartónleikar verða haldnir mánud. 25. mars í sal skólans Eyravegi 9 Selfossi. Þátttaka er mjög góð í ár og verða að þessu sinni haldnir tvennir tónleikar: Fyrri tónleikarnir kl. 18:30 Seinni tónleikarnir kl. 19:45 Á tónleikunum koma fram nemendur sem lagt hafa að baki fyrsta hluta tónlistarnáms síns. Miðdeildartónleikar eru alltaf metnaðarfullir og fjölbreyttir. Gefst Sunnlendingum gott tækifæri til að skyggnast inn í öfluga starfsemi skólans. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn