Á starfsdögum höldum við m.a. ýmis námskeið eða fyrirlestra um málefni sem gagnast kennurum í starfi.
19. ágúst sl. sátu kennarar námskeið Maríönnu Guðbergsdóttur frá Jafnréttisskólanum, sem bar heitið: Háværir strákar og sætar stelpur, en það fjallar m.a. um staðalmyndir kynjanna, mikilvægi jafnréttisfræðslu og að bera kennsl á staðalmyndir sem geta verið hamlandi og jafnvel skaðandi fyrir nemendur. Var fyrirlesturinn og hópastarfið sem fylgdi, gott veganesti út í veturinn.
Á kennaraþingi 26. sept. var svo fjallað um breytingar á aðalnámskrá tónlistarskóla (sem er í umsagnarferli) og menntun og starfsþróun tónlistarskólakennara í Listaháskóla Íslands.
/Helga Sighv.