Haustannir

Verkefni haustsins eru alltaf fjölmörg og í mörg horn að líta. Kennarar hafa samband við öll heimilin og setja saman stundaskrár, vetrarstarfið er skipulagt á sameiginlegum fundum og deildafundum, námsefni og hljóðfæri eru yfirfarið o.fl. – Að auki koma alltaf upp einhver óvænt atriði sem bregðast þarf við.

Tónlistarskólinn þurfti að flytja úr viðbótarhúsnæði að Eyravegi 15 á Selfossi, vegna myglu. Fluttist kennslan þaðan að mestu leyti í Stekkjskóla (þar sem vel var tekið á móti okkur 🙂 og til viðbótar þrengdum við að okkur á Eyravegi 9. Svona flutningar þýða mörg handtök og ómetanlegt hve kennarahópurinn er samhentur um að láta hlutina ganga upp.

Það þurfti m.a. að flytja flygil yfir í Stekkjaskóla

Blokkflautur voru olíubornar og þvegnar – og skipt um strengi og trommuskinn

 

Við tókum líka þátt í tómstundamessum á Selfossi og í Hveragerði í ágústlok.

Hér eru þeir Vignir og Guðmundur Kr. við tónlistarskólabásinn á Selfossi.

/Helga Sighv.

2024-10-01T15:47:07+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi