Jólakveðja tónlistarskólans 2023 var tekin upp 13. desember. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir.
– – –
Starfsfólk Tónlistarskóla Árnesinga óskar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla með þökkum fyrir árið sem er að líða.
Jólakveðjuna í ár flytja hjóðfæra- og söngnemendum skólans ásamt kennurum.
Lagið er Gleði og friðarjól eftir Magnús Eiríksson í útsetningu Jóhanns I. Stefánssonar.
Einsöngvari er Rúnar Baldvin Felixson.
Sjá hér: https://fb.watch/p5GL7ro2L0/
Megi árið 2024 verða ykkur gæfuríkt og farsælt á tónlistarbrautinni.
– – –
Að vanda koma margir kennarar að undirbúningi, flutningi og upptökum jólakveðjunnar:
Margrét S. Stefánsdóttir stjórnaði söngfuglum og söngvurum
Vignir Ólafsson stjórnaði rytmísku bandi og lék á rafgítar
Örlygur Benediktsson lék á klarínettu
Ulle Hahndorf lék á selló
Stefán I. Þórhallsson lék á trommu og sá um upptökur
Jóhann I. Stefánsson sá um útsetningar og upptökur
Guðmundur Kristmundsson sá um klippingu jólakveðjurnnar
Að auki fengu nemendur liðsinni sinna einkakennara við æfingar