This event has passed.
Smiðjuvikan 27. – 31. mars – námskeið/smiðjur í stað kennslu
27. mars 2023 - 31. mars 2023
Í síðustu viku marsmánaðar brjótum við upp hefðbundna kennslu og bjóðum nemendum okkar upp á alls konar námskeið eða smiðjur í staðinn.
Miðað er við að:
Nemendur í hálfu námi sæki a.m.k. 1 klst. smiðju
Nemendur í heilu námi sæki a.m.k. 2 klst. af smiðjum.
– Nemendur sæki a.m.k. eina smiðju í heimasveit, en geta valið til viðbótar smiðju eftir óskum/áhugasviði.
Skráning í smiðjur fer fram í gegnum kennara, en HÉR má sjá hvaða smiðjur eru í boði á hverjum kennslustað og hvenær. (Hver kennslustaður er í sér flipa).
- Upplýsingar um viðfangsefni hverrar smiðju má sjá með því að setja bendilinn á rauða þríhyrninginn, eða talbóluna sem birtist ef smellt er á heiti smiðjunnar.
- Upplýsingar fást líka hjá kennurum.
Góða skemmtun 🙂