Vínarbrauðstónleikar strengjadeildar fóru fram í Félagsheimilinu Árnesi sunnud. 1. maí. Á þessum skemmtilegu tónleikum komu fram báðar strengjasveitir skólans, sellóhópur og allir starfandi fiðlu-, víólu- og selló-Suzukihópar. Eldri strengjasveit hefur haft samstarf við aðra tónlistarskóla í vetur og léku því nemendur úr Tónlistarskóla Rangæinga, Tónskóla Sigursveins og Allegro Suzukitónlistarskólanum með hljómsveitinni.
Vínarbrauðstónleikar hafa átt fastan sess í tónleikahaldi skólans og voru þetta 20. vínarbrauðstónleikar strengjadeildar. – Heilmikil tónlistarhátíð sem endaði að vanda með vínarbrauði og öðru kruðeríi í dagskrárlok.