Svæðistónleikar Nótunnar í Salnum Kópavogi
16. mars 2019 kl 12:00 - 16:30
Svæðistónleikar Nótunnar (uppskeruhátíðar tónlistarskólanna) verða haldnir í Salnum Kópavogi, laugard. 16. mars.
Eftirtaldir nemendur verða fulltrúar Tónlistarskóla Árnesinga á svæðistónleika Nótunnar, hver úr sínum flokki:
Tónleikar kl. 12:00
Eyrún Huld Ingvarsdóttir, fiðla – einleikur
Rytmasveitin No Sleep (Gylfi Þór Ósvaldsson rafgítar, Jakob Unnar Sigurðarson rafbassi, Valgarður Uni Arnarson rafgítar og Þröstur Ægir Þorsteinsson trommur) – samspil, opinn flokkur.
Tónleikar kl. 14:00
Hrafnkell Örn Blöndal Barkarson, píanó – frumsamið verk
Sædís Lind Másdóttir, söngur – einsöngur
Að auki tekur Klara Sól Ólafsdóttir, blokkflautunemandi Tónlistarskóla Árnesinga þátt í samleiksatriði með nemendum úr Tónlistarskóla Rangæinga.
Verðlaunaafhending kl. 16:00
Við óskum nemendunum góðs gengis á Nótu-tónleikunum í Kópavogi.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn