This event has passed.
Svæðistónleikar í Þorlákskirkju kl. 15
9. febrúar 2019 kl 15:00 - 16:00
Dagur tónlistarskólanna 9. febrúar 2019
Dagur tónlistarskólanna er haldinn hátíðlegur um allt land laugard. 9. febrúar.
Í tilefni dagsins stendur Tónlistarskóli Árnesinga fyrir sex svæðistónleikum í Árnessýslu.
Nemendur úr Þorlákshöfn, frá Stokkseyri og Eyrarbakka leika á tónleikum í Þorlákskirkju kl. 15:00
– Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!
– – – –
Þessir tónleikar eru um leið valtónleikar fyrir Nótuna (uppskeruhátíð tónlistarskólanna).
Áheyrendur fá að taka þátt í vali á því atriði sem þeim þykir skara framúr á tónleikunum, með því að tilnefna tvö atriði. Þau atriði sem fá flest stig fara í pott sem deildarstjórar velja úr fyrir Nótuna.