Klassískt nám er ætlað nemendum 6 ára og eldri.
– ATH. Undir nöfnum hljóðfæranna eru virkar krækjur með upplýsingum um hljóðfærin.
Námsgreinar eru:
• Einsöngur– fyrir 16 ára og eldri. – Yngri nemendum er bent á Söngfuglar 10 – 15 ára.
Hljómborðshljóðfæri:
• Píanó
Málmblásturshljóðfæri:
• Básúna
• Horn
• Kornett
• Trompet
• Túba
Tréblásturshljóðfæri:
• Blokkflauta – (Blokkflautan-ítarefni)
• Saxófónn
Strokhljóðfæri:
• Fiðla
• Selló
• Víóla
Ef óskað er eftir öðrum hljóðfærum en að ofan greinir, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu.
Nemendur sem sækja um nám á básúnu, horn, kontrabassa, selló, túbu og víólu fá forgang, enda eru þetta mikilvæg hljóðfæri í öflugu hljómsveitastarfi skólans.
Kennt er í einkatímum, 30* – 60 mín. á viku.
Nemendur á blásturs- og strokhljóðfæri, slagverk, gítar og söng hefja þátttöku í hljómsveitum eða samspili strax og geta leyfir (á 1. – 3. ári).
Nemendur á blásturs- og strohljóðfæri geta fengið leigð hljóðfæri hjá tónlistarskólanum.
Nemendur á önnur hljóðfæri þurfa að hafa aðgang að, eða kaupa hljóðfæri (í samráði við kennara).
Í tónlistarnámi þarf að gera ráð fyrir kaupum á nótnabókum, nótnapúlti (statífi), fótstól o.fl. eftir því hvert hljóðfærið er.
* Í klassísku og rytmísku námi býðst nemendum á fyrsta ári að sækja 30 mínútna einkatíma, en á öðru ári er almennt miðað við að nemendur séu í heilu námi þ.e. 60 mín. á viku í einkatíma.
Kennt er samkvæmt Aðalnámskrá tónlistarskóla (Almennum hluta og greinanámskrám): Stjórnarráðið | Námskrár (stjornarradid.is)
– Amennur hluti: Aðalnámskrá tónlistarskóla – almennur hluti (stjornarradid.is)
– Greinanámskrár:
Aðalnámskrá tónlistarskóla: málmblásturshljóðfæri 2001 (stjornarradid.is)
Aðalnámskrá tónlistarskóla – Tréblásturshljóðfæri (stjornarradid.is)
Aðalnámskrá tónlistarskóla : strokhljóðfæri 2001 (stjornarradid.is)
AÐALNÁMSKRÁ TÓNLISTARSKÓLA : HLJÓMBORÐSHLJÓÐFÆRI 2002 (stjornarradid.is)
AÐALNÁMSKRÁ TÓNLISTARSKÓLA EINSÖNGUR 2002 (stjornarradid.is)
Aðalnámskrá tónlistarskóla: gítar og harpa 2002 (stjornarradid.is)
Aðalnámskrá tónlistarskóla : ásláttarhljóðfæri 2003 (stjornarradid.is)