Á DÖFINNI
TIL FORELDRA
Mikilvægt er að nemendur búi við jákvætt viðhorf til tónlistarnámsins, að foreldrar/forráðamenn sýni náminu áhuga og þeir fylgist með framvindu þess.
- Hljóðfæranám byggist að miklu leyti á daglegri og reglubundinni þjálfun og er því að verulegu leyti heimanám. Án markvissra æfinga verður árangur rýr.
- Nauðsynlegt er að nemendur geti æft sig þar sem þeir verða fyrir minnstri truflun og hafa ekki á tilfinningunni að þeir trufli aðra.
- Ungum nemendurm þarf að hjálpa við að skipuleggja æfingatímann.
- Árangursríkara er að ungir nemendur æfi sig oftar og skemur í senn en sjaldnar og lengur.
- Tónlistarnám þarf að vera ánægjulegt og ánægjan felst ekki síst í stolti nemandans yfir eigin framförum og aukinni færni.
- Eðlilegt er að áhugi nemenda sé ekki alltaf samur og jafn. Ef nemandi sýnir merki um uppgjöf er mikilvægt að kennari og foreldrar/forráðamenn leiti orsaka og lausna. Stundum er nóg að skipta um viðfangsefni til að áhuginn glæðist á ný.
- Hlustun er afar mikilvægur þáttur í öllu tónlistarnámi. Með því að hlusta á vel flutta tónlist fá nemendur nauðsynlegar fyrirmyndir. Foreldrar/forráðamenn geta lagt sitt af mörkum með því að hvetja nemendur til að hlusta á fjölbreytta tónlist við margs konar aðstæður og með því að fara með þeim á tónleika þegar tækifæri gefast, bæði innan tónlistarskólans og utan.
SKÓLINN
Join Over 500,000 Students Enjoying Avada Education Now
Become Part of Avada University to Further Your Career.